Öryggis- og heilbrigðisstefna
Heilsa og öryggi starfsmanna og samstarfsaðila er í fyrirrúmi hjá Línuborun þar sem öllum er tryggt öruggt
og heilsusamlegt vinnuumhverfi sem stuðlar að slysalausum vinnustað.
Línuborun skuldbindur sig til þess að:
• Uppfylla kröfur viðskiptavina, laga, reglugerða og staðla.
• Greina áhættu, vinna stöðugt að úrbótum og setja markmið þar að lútandi.
• Leggja starfsmönnum til aðstöðu, tæki og búnað sem uppfyllir öryggiskröfur.
• Leggja starfsmönnum og gestum til viðeigandi persónuhlífar.
• Leggja til viðeigandi neyðaráætlanir og skyndihjálparþjálfun.
• Veita nauðsynlega þjálfun og fræðslu í öryggismálum.
• Hvetja til þátttöku og samráðs til að viðhalda öruggum vinnuaðstæðum.
• Rannsaka atvik og hættu með úrbætur að markmiði.
• Fylgjast með virkni öryggisstjórnunarkerfisins.
• Fylgjast með áhrifum starfseminnar á heilsu með heilsufarsskoðunum.
Öryggi, heilsa og öruggt vinnuumhverfi er á ábyrgð stjórnenda, allra starfsmanna og þjónustuaðila og greinist þannig:
Stjórnendur
• Tryggja að þessari stefnu og öryggisstjórnunarkerfinu sé viðhaldið.• Tryggja að virkt samráð sé um öryggismál milli starfsmanna og stjórnenda.
• Leitast við að auka öryggi í samstarfi við yfirstjórn.
Verkstjórnendur
• Tryggja að öryggisstjórnunarkerfinu sé fylgt.• Tryggja að starfsfólk sé hæft til að sinna verkefnum sem því er úthlutað.
• Tilkynna öll atvik sem upp koma til stjórnenda.
Starfsmenn
• Þekkja og fylgja öryggisreglum.• Nota viðeigandi persónuhlífar.
• Tryggja heilsu og öryggi þeirra sjálfra og annarra á vinnustað.
• Tilkynna öll atvik sem upp koma til yfirmanns.
Þjónustuaðilar
• Fylgja öryggisreglum Línuborunar fyrir undirverktaka.• Tilkynna verk sem geta haft áhrif á heilsu og öryggi þeirra sjálfra og annarra.
• Leitast við að auka öryggi í samstarfi við starfsmenn og stjórnendur.
Framkvæmdastjórn Línuborunar hefur samþykkt þessa stefnu og styður við framkvæmd hennar. Stefnan er endurskoðuð árlega á rýnifundi stjórnenda.